|
|
06.07.2007 21:34:13 / siljan
tók þetta útaf, ætlaði alltaf að taka þetta útaf .. Ég og
Addi erum alveg góð núna, í bili allavega :]
bleeellleeer
»
22.06.2007 21:47:57 / siljan
hæhæ, bloggaði hérna fyrir neðan ..
en ég er allavega að passa nuna bara, fint að komast í tölvu svona
smá ..
já, eins og ég sagði, fyrir neðan .. búin að versla
alveg e-ð .. allavega
1 buxur
1 svona stuttar buxur, ekki stuttbuxur heldur svona sparí 
1 vesti
2 skó
3 jakka
3 peysur
2 boli
1 kjól
1 skyrtu
belti
spöng
naglalakk
hring
hálsmen
armband
ilmvatn
peysu á Adda, og ég er að gleyma e-rju. Ég veit það 
heyrðu já, svo ógeðslega mikið um afmæli
nuna, Aldís og Matta í 8unda áttu afmæli í gær, svo á systir mömmu
afmæli á morgun og ég ekki morgun heldur hinn, og Eva vinkona min
úr mosó líka. oog, Hörður bróðir Adda á svo afmæli 26, minni mig,
og svo litli bróðir minn 28 .. bara allt að gerast, og þá verður
einmitt pantaður hoppukastali, í afmælinu hans Dadda, ýkt mikið
fjör, Rakel þú mætir, þaggi ? hahah, eins og í
fyrra 
já ég er líka búin að fá myndavél í afmælisgjöf frá pabba minum,
canon, ixus 70 ógeðslega svöl vél .. þannig ég get dúndrað
inn myndum á þessa síðu, svo er Addi búin að kaupa handa mér síma
veit ég ;$ svo ætla ég að biðja um ipod eða bara föt frá mömmu,
kannski hun vesli á mig föt hérna í dk, fá meira fyrir peninginn
svo fékk ég líka Húsavíkurferð frá Sonju og Unnari, :] geeeggjað
alveg, sem ég fór í helgina áður en ég fór til dk..
e-ð annað að frétta ? uhm, ég kem eftir 4 daga, hlakka ekkert smá
til, byrja svo í unglingavinnuni eftir 5 daga . fer síðan
e-rntimann austur eftir að ég kem heim að læra á bíl 
jáá, svo er Addi að fara að fá audi, A4 held ég ? hehe, nýjann held
ég .. annars veit ég voða lítið um bíla, finnst það bara
einum of svalt (A) eeeen, bið að heylsa öllum .. bleller
en ætla skella inn myndum hérna í lokin,

hehe, amma þarna, með stóru sólgleraugun, svo systir mömmu, dóttir
hennar og ég, orðin algjör bolla 

hahah, tásurnar minar .

hahah, aular . ég og litli brósi .

ég í minigolfi, vann næstum 

mhmm, ég að hlustá ipod inní 'kóngulóaherberginu'
»
21.06.2007 18:20:49 / siljan
hæhæ, AAAA, mig hlakkar til að koma heim  fara í unglingavinnuna
og fl.
er buin að vera hérna í 16 daga, ! mjög svo fínt, á eftir að vera í
5 daga í viðbót. en held þetta sé komið fínt 
lítil sól og svona þannig ég get ekki farið í sólbað, samt alveg
stuttbuxnaveður. en svo er ég búin að versla í kringum 100 þúsund
og mamma bannar mér að versla meira, þannig ég hef voða lítið að
gera hér  fer reyndar í legoland um helgina,.
btw, ég á afmæli eftir 3 daga, ekki gleyma því (A)
ætlaði nú að hafa þetta lengra en verð að fara ... bleller
;**
og já, smá fréttir, komst inní iðnó í hfj (A) á listnáms braut ..
BÆ
»
04.06.2007 00:20:34 / siljan
Silja Ferðalangur hér ..
seinasta bloggið í 3 vikur ? það held ég nú
en okei, ferðalangur segiru ?
þar seinustu helgu keyrði ég til Eskifjarðar, alveg hinumegin á
landinu, og fór einnig til Egilstaða og svona seinustu helgi
keyrði ég svo á kirkjubæjarklaustur sem var æði, og svo
þessa helgi keyrði ég til Húsavíkur, alveg lengra en Akureyri,
þannig það vantar smá spotta þarna, millu Húsavíkur og Egilstaða og
þá er ég búin að fara hringinn og sumarið ekki byrjað 
og hvorki meira né minna en það, þá ég að fara til dk ekki þessa
nótt heldur næstu 
þannig, engilega óskið mér góðrar ferð ..
svo vantar mig líka Ipod í láni, eða mp3 spilara sem einhver er
hættur að nota .. bara fá hann lánaðann í 3 vikur lofað skemma
hann ekki 
og já, svo vantar mig líka nokkur lög,
e-r lög á íslenska listanum .. er buin að
fá þessi fyrir neðan send 
umbrella - Rihanna
away from the sun - 3 doors down
dear mr. president - pink
Jane fonda - M.....
?
og e-ð meir .. ! ! endilega senda mér þau á msn ef þú átt þau !!
;D
en ætli ég kveðji ekki með nýjum
myndum úr nýju myndavélinni minni sem pabbi gaf mér í afmælisgjöf
!! BTW ÞÁ Á ÉG AFMÆLI 24 JÚNÍ .. ÉG VERÐ
ÚTI ÞÁ ÞANNIG MÉR MYNDI ÞYKJA AGALEGA VÆNT UM AÐ FÁ SMS FRÁ ÞÉR

 ég í góða
veðrinu á Húsavík

ég að liggja uppí rúmi hjá ömmu og afa, ég gerði mikið af því þar
.. 
»
29.05.2007 00:21:24 / siljan
»
21.05.2007 20:07:42 / siljan
Díí, ég er svo drullupirruð að ég held að
enginn geti lagað það nema Addi, og ég veit ekki um hann .. oh,
greyið ég !
Ég er búin að taka eina ákvörðun. Ég ætla að gjörbreytast, okei ég
held að fólk sé alveg sammála mér í því að ég er búin að breytast
dáldið, núna bara á ekki svo mörgum dögum, sirka 1 - 2 mánuðum.
Eeeeen, þessi breyting er ekki nóg.
Ég ætla að láta fara mjöööög lítið fyrir mér .. sleppa því að mæta
í partý, ! því oft gerast kjaftasögurnar þar. séstaklega þegar
maður er svona mikill rugludallur eins og ég :] ;P Ég ætla að vera
ótrúlega kurteis og hætta öllum flippköstum (reyna það að
minnstakosti) því þá verð ég svo rugluð en ég ætla nú ekki
að hætta að vera hress

Ég held að málið sé að ég ætla bara að haga mér ótrúlega vel, !
reyna að gera ekkert vitlaust og svona . þá held ég að það sé allt
gott .. Ég ætla t.d. að hætta með þessa heimasíðu, haha, bráðlega
.. ef ég get ;D læt kannski e-ð heyra í mér í dk og svona :] fyrir
fjölskylduna og svona . eins og ég sagði, ætla að láta fara mjög
lítið fyrir mér og vera sem minnst áberandi. Ég vil að enginn viti
hver ég er,. Ég er líka hætt að treysta fólki :] svo mikið er víst,
enda held ég að það sé best að þegja yfir sínum eigin leyndarmálum.
þó það sé stundum erfitt en það er best á endanum ;D eina
manneskjan sem ég treysti þessa dagana er Addi, og held það verði
þannig á næstuni. Og ef það er e-r sem les þetta .. þá veltir sú
manneskja sér örugglega uppúr því afhverju ég sé að þessu, afhverju
ég vilji breytast, ! þá skal ég svara þér núna :]
Mér finnst bara komið að því, engin ástæða, kom ekkert uppá eða
neitt .. varð bara einn daginn þreytt á öllu rugli :] batnandi
manni er best að lifa 
takk fyrir mig :]
»
14.05.2007 20:35:05 / siljan

úr afmæli Hafrúnar
fólk er ekki alveg sátt með að ég sé ekki með bloggsíðu, veit
enginn hvar ég er og hvað ég geri :'D svo nefndi Fannar líka að ég
þyrfti að byrja aftur því honum finnst svo gaman að sjá mig tjá mig
og sjá aðra rífaast við mig .. já kannski nokkuð til í þessu
?
okei, hafa það á hreint, ÉG SLEPPTI FERÐINNI
ÞVÍ ÉG NENNTI EKKI ! ÞAÐ ER ÁSTÆÐAN, ! EKKI
E-Ð AÐ ÉG HAFI ÞURFT AÐ PASSA OG E-Ð, ! ER ÞAÐ KOMIÐ Á HREINT
?
meðan 10 bekkur fór í þessa ferð þá var ég
bara heima að tjilla, dáldið slöpp alltaf, en tók bara verkjatöflur
og c-vítamín og lýsistöflur á morgnanna góð á því bara
! og Addi kom alltaf (eða þessa tvo daga, fimmt
og föst) eftir prófin hjá sér og við héldum áfram að
lúlla :] síðan gerði ég alltaf e-ð skemmtilegt jú ég og Addi
fórum að kaupa ís í góðaveðrinu, ! síðan fórum ég og Hera í
kringluna, ég keypti mér carhartt buxur, úper nettar sko ! um
kvöldið gerðum við e-ð skemmtilegt eða ég byrjaði á því að passa
og fór svo útá nes og bara, plastað bíla og setti rjóma á þá og e-ð
:'D kíktum í partý á nesinu sem við btw komumst ekki inní, hahah,
tjilluðum e-ð fyrir utan bara .. kíkti á rúntinn með Adda og Hauk,
maaagnað stuð ! kíkti á Trausta og bara jáá gerði alveg helling,

á laugardeginum gerði ég ekkert held ég, hékk
í tölvuni og fór svo í afmæli hjá Hafrúnu um kvööldið, það var
rosa fínt, gaman að sjá krakkana aftur og svona :] fór síðan heim,
kíkti til Heru, ! svo kom Pétur og hann skutlaði okkur í hfj, hitti
þar fólk, Geir, Bubba og fleiri, ! spjölluðm við Lögguna, hún
ávallt hress, kom mér skemmtilega á óvart .. oooog, siðan kom Gunni
og skutlaði okkur inní garðabæ í partý, þar sem var bara ekkert
skemmtilegt :/ eða jújú, fínt svona fyrst, ! svo ætlaði ég niðrí
bæ, að hitta Bjarka félaga minn, en nei nei, gaurinn sem skutlaði
mér skutlaði mer bara heim . haha huhh, heima talaði ég í símann
og fór á msn og gerði ýmislegt skemmtilegt :'D eða ? spurning hvort
það sé e-ð skemmtilegt ? tjaa 
Sunnudeginum svaf ég lengi, ! svo kom Addi,
og við bara láum uppí rúmi e-ð .. svo fórum við á McDonalds og í
ljós með Sonju, ! svo fórum ég og Addi bara heim að kúra, ætluðum í
bíó eeeen, ég nennti ekki og þá nennti Addi ekki ! oh, asninn

en svo bara skóli í dag, rosa spennó verkefni
í gangi þar, ég með Betu og Heklu, ! ARTERY ! haha töfferz
maðuurh !
ooog, síðan kom ég heim, sofnaði smá og fór niðrí hfj, átti víst
að fara til sálfræðings, hann skráði mig á þennan dag kl. 14:30 en
síðan var bara allt lokað og læst, þannig ég slapp við það fór
niðrí fjörð með Dadda og Sonju, ´fór heim að passa Daddaling, var
útí góðaveðrinu bara, ! fór svo inn að taka til í eldhúsinu, ! það
verður víst e-r að gera það meðan mamma er útí útlöndum ! eeeeen,
svo kom Addi, og hann bara fór að sofa, og ég fór að borða, svo fór
ég að sofa með honum .. og svo fór Addi á fótboltaleik, nennti svo
bara aaallsekki með honum !
en jæjja ! er fólk sátt ? hahah, ! það er skylda að lesa
þetta 
samt, pottó enginn sem nennir því !
en bara bæbæ
»
30.04.2007 14:19:25 / siljan
»
28.04.2007 13:42:43 / siljan
er jeg
eina manneskjan sem skrifa fyrirsögnina (titillinn á blogginu)
áður en jeg blogga ?
allavega, jeg er hérní góðum fýling, finnst böggandi að hafa svona
eeeeeldgamalt blogg hérna fremst þannig jeg ákvað að blogga. það er
samt eekki það mest spennandi á heimasíðum, vefdagbókin, þannig ég
ætla ekki að hafa þetta langt, ! jeg ætla að minna fólk á að læra !
samræmdu eru eftir 4 dagaa ;o
en jeg er búin að gera heilann helling þessa dagana, ! fór nú samt
ekki í skólann mán, þrið og miðv. veik, alveg fárveik á miðv. en
nenni nú ekki að ræða það ! en jeg fór í fótasnyrtingu í vikuni, vá
það var æði ! jeg mæli með því sko ! núna eru tásurnar mínar ýkt
fínar [a] og jeg líka fór út að borða nokkrum sinnum !
Grillhúsið í tryggvagötu ! það stendur alltaf uppúr, og einmitt
klúbbsamlokan þar ! ooog, svo fór jeg líka á Trocadero, hef
alltaf fengið mér pítsu þar, sem eru bara geeeeðveikt góðar ! en
núna fékk ég mér Hamborgara, og váá, þeir eru klikkað góðir sko
en svo fór jeg á Ruby Tuesday og fékk mér einn borgara, þeir voru
bara melló sko ! já og ekki má gleyma McDonalds, þangað fór
jeg og McOstborgari klikkar aldrei þar heyrðu þetter ekki búið,
jeg fór líka í bíó á Perfect stranger, hún er gjöööðveikt góð ! jeg
mæli með henni ! sko í alvuruni ;o afbragðs leikarar og svona
og síðan bara, gerði jeg alveg helling bara fleira 



já og síðan fór jeg á sailesh á broadway í gær, það var klikkað
gaman sko vá sko ;D en hérna jáa, fór síðan bara í e-ð paartý og
svo heim í tölvuna en ookei, jeg sem ætlaði ekki að hafa þetta
langt þá varð þetta samt e-ð langt en jeg ætla nú ekki að fara
að stroka þetta allt út þannig þá bara verður þetta svona langt
og þetta verður ekki lengra !
BÆ ;D
ko,ko,kooooommmeeenta !
»
22.04.2007 16:02:54 / siljan
HÆÆÆÆÆ !
Ég ætlaa að byrja með þessa síðu aftur, prófa
og ef hun verður bara kúkur og piss þá bara hætti
ég aftur, það er ekkert öðruvísi en það
samræmdu ? já þau eru eftir 10 daga
..
mér hlakkar ekkert smáá til get ekki beðið!
nei segji svona, en það verður æðislegt þegar
þau eru búin, svo miklir léttir e-ð .. hahah
það er samt e-rnveginn enginn buinn að vera e-ð
að liggja í lærdómnun fyrir þessu próf, þvílíkt kæruleysi,!
ég ætti t.d. ekki að sitja hérna og blogga heldur
vera að læra . enda ætla jeg bara að kveðja núna, oog ?
kannski fara að læra bara hver veit 
nema eitt, --> í skólanum á föstudaginn var
Steinunn að kenna okkur stærðfræði uppá töflu,
svo situr Ívar fyrir framan mig og Ottó hægra megin við mig, og
Ottó var e-ð að nöldra
'NEI, þetter vitlaust, þetta er vitlaust' e-ð að reyna að segja að
það sem Steinunn væri
að sýna okkur væri vitlaust . þannig jeg rúllaði mér til hans
og kenndi honum þetta
og þá heyrðist í Ívari e-ð 'Hva, er
eggið bara farið að kenna hænuni' hahaha, xD

»
22.03.2007 23:44:19 / siljan
JÁ HÆ !
jeg ætla að láta vita að þessi síða er í pásu!
og jeg er komin með nýja ! sem er enn nettari sko (Y) 
Nýtt slúður á hverjum degi .. hvorki meira né minna ;D
Nýjar myndir á leiðini og fleira fleira .. manneskja mánaðarins
og fínerí !
jeg skil nú ekki alveg afhverju það eru búnir að fara fleiri inná
pung en saints-
þið verðið bara að vera duuugleg að kíkja á saints- ;D
hún er þó lifandi 
www.saints-.central.is
»
01.03.2007 01:01:44 / siljan
NÝ SÍÐA ! www.saints-.central.is
ALLIR AÐ KÍKJA .. NÝTT SLÚÐUR -
1MARS .. og NÝJAR MYNDIR
Pungur- verður í smá pásu og lifnar svo hressilega við
eftir smá ..
»
22.02.2007 00:28:53 / siljan
hæhæ sveittu .. já og hæ Arii 
í dag er öskudagur , eða í gær eða nei í dag .. það er ekki
kominn 22 .. bara komið kvöld, eftir miðnætti .. okei ? skiljiði ?
já annars eruð þið retard ..
já, vikan er buin að vera fin , í skólanum sérstaklega . best (Y)
eða já, allavega að þurfa ekkert að læra .. bara e-ð að æfa atriðið
okkar sem við sýndum á öskudag og bara gera ekki neitt skoo .. eins
og í gær, [þriðjudag] þá var jeg veik og e-ð .. gat ekki hreyft
mig, þannig þá gat jeg ekki æft mig og allt i klessu bara .. en
siðan gekk mér bara sæmilega í atriðini i dag .. já reyndar er
þetta búið að vera leiðinlegast öskudagur sem jeg hef upplifað ..
:] eeeeeeeen, jújú, hann var svo sem alveg fínn .. kennararnir
þurftu náttúrlega að eyðileggja daginn fyrir mér .. með því að
banna mér að vera í fkn magadansbúningnum .. mátti ekki einu sinni
vera í honum í dansatriðinu ,, pff . ! skítapakk ! en atriðið okkar
fkn brilleraði .. fyrir utan að jeg þurfti að vera í e-rjum alltof
stórum bol sem passaði ekkert við .. pff, fkn tusssööörh ! en svo
eftir hádegi var jeg svo býfluga .. og var svo að vinna á e-rri
stöð hjá litlu krökkunum í íþróttahúsinu .. í litatjaldinu ,,
geggjað kósý sko 
jáá, en jeg vill bara óska Þórhildi til hamingju með
afmælið .. eða hun átti afmæli 20 Feb .. Til Hamingju með 16 ára
afmæliiið :*
eeeeeen, svo koma myndir smá myndir ..
Yeah .. Svona mátti jeg ekki vera í skólanum á öskudag .. ekki einu
sinni í dansatriðinu ..
omg, beeeeeeee .. *suð*
ooo, svo jeg og Daddi litli bróðr minn .. eða "pó" algjört krútt
<3 |
»
16.02.2007 19:59:44 / siljan
Helgin er búin að vera fine ..

á föstudaginn var bara einn besti skóladagur sem jeg hef upplifað
..
frí í fyrsta tíma ,, þannig jeg fór í skólann klukkan 9:35 og bara
í tímanum hlustuðum við á það hvernig skipulagið á öskudeginum væri
.. siðan bara seinasta korterið lásu allir eina setningu í dönsku
.. svo bara átti að vera samfélagsfræði val frá
10:55 - 12:25 og svo skólinn búinn en Svavar var ekki þannig að við
fórum ekki í samfélagsfræði þannig bara skólinn búinn klukkan 10:35

svo bara dreif jeg mig heim að sofa .. og vaknaði og var bara í
tölvuni til alveg 10 um kvöldið og fór þá til Heru .. svo kom Eyfi
? að sækja okkur og við fórum í e-ð partý í hfj .. og svo bara
löbbuðum við í 10 - 11 og Gunni kæróinn hennar Heru kom að sækja
okkur .. svo fór jeg bara á rúntinn með Frikka .. og fór svo bara
heim um um 3 eða e-ð ..
svo í gær var jeg smá veik .. svaf til 3 .. eða var alltaf að sofna
og vakna og vaknaði svo alveg klukkan 3 og fór með Sonju og Unnari
að fá okkur að éta .. vorum ekki alveg viss hvað við ætluðum að
gera .. fórum fyrst í fjarðarbakarí .. en hættum við og fórum á
smáratorg .. en hættum svo við og fórum í Ikea og fengum okkur
sænskar kjötbollur ... siðan fór Unnar í vinnuna og jeg og Sonja
e-ð heim til Unnars, fórum svo í ljós og svo bara beint heim til
min að horfa á mynd og svona ,, siðan var bara e-ð brjálað pártý
hér heima,, allir að horfa á júróvisjon .. Urður kom til min og e-ð
,, siðan bara ákvað hun að gista og við fórum um 11 til Olla í hfj
.. oooo, fórum svo klukkan hálf 1 eða e-ð á rúntinn .. ætluðum svo
í e-ð partý sem var bara búið um klukkan 1 eða e-ð .. en þegar við
komum voru bara allir útá götu og e-ð ,, jeg hitti þar áhugavert
fólk .. hahah, allir blindfullir 
en svo bara rúntuðum við meira og vorum komnar heim e-ð rétt yfir 2
og jeg bara fór í tölvuna til 4 eða e-ð og Urður sofnaði eiginlega
bara strax 
í dag er jeg buin að liggja uppí rumi að horfa á sjónvarpið og í
tölvuni ,, kíkti aðeins fram á fólkið og setti glassúrið á
bollurnar sem mamma bakaði .. fór svo bara aftur í tölvuna , svo
bara fór jeg fram að borða bollur .. fór svo aftur í tölvuna og fór
svo að sækja kínamat og til Röggu að fá lánaðann magadansbúninginn
hennar .. djöfull verð jeg nett á öskudag eeeeeeen, siðan kom
jeg heim að eta kinamat og er bara buin að vera í tölvuni siðan ..
og að tala við Urði í simann ,,
og jáááw .. komnaar m y
n d i r ..
»
01.02.2007 19:38:48 / siljan
eyh .. ? sveitt eða ?
ja hæ.
síðan min er dáin .. ekki viss um að jeg geti lífgað
hana e-ð við en kannski það gerist e-rntimann
seinna ..
þannig fólk verður bara að heimsækja síðuna í kirkjugarðinn ..
skilja eftir sig blóm og kerti og fleira í gestabók og skoðunum
..
en krakkar
? jeg er nu samt ekki að tala um pásu sko .. bara veit ekkert hvað
jeg er að tala um .. hahah

en seinasta helgin ?
og þessi vika .. fine 
weeeell,, ! jeg fór bara í skólann seinasta föstudag. Nei grín ..
núna lýg jeg .. jeg fór í námsviiðtöl, fékk einkunninar minar og
svona fínerí. fór svo bara í fjörðinn og e-ð snúast með mömmu ..
kaupti mér Diesel buxur .. hel nettar sko svo fór jeg bara heim
og e-ð, fór svo eiginlega bara strax í smáralind með Betu .. Hei
Beta ! varstu að freta ? hahaha neee, en við bara tjilluðum ..
sáum ENDALAUST mikið af flottum fötum og jeg vildi bara næstum
kaupa allt svona akkúrat þegar jeg á NÓ pening sko .. haha
en síðan bara kom Sonja að sækja okkur og við fórum svo aðeins á
pizzuna. svo kom mamma og Eiður að sækja okkur, skutlaði betu heim
og jeg fór bara heim að tjilla, gerði mig svo reddý bara og Sonja
og Unnar skutluðu mér í e-ð æfingarhús þar sem e-rjir kreisý gaurar
voru á hljómsveitaræfingu .. þar var Beta og Arnór og fl. við fórum
bara á rúntinn, jeg, Beta, Arnór, Óli og Þórólfur . fórum niðrí bæ
og svona .. fór siðan bara heim klukkan 2 eða e-ð :/
á laugardaginn fór jeg út að labba með litla bróðir minn. í
brjálaðri rigningu og læti .. fórum bara á bessann og keyptum okkur
franskar og svona kósý um kvöldið gerði jeg mig reddý ..
skipulagði kvöldið sem fór svo í fokk en það var ekkert verra fyrir
það .. Viktoría kom hingað til min og við sem vorum FKN FERSKAR
fórum og máluðum okkur og svona .. hahah, ! ætluðum að fara út ekki
seinna en 9 en loksins komum við okkur út um klukkan hálf 11 .
Pétur kom og sótti okkur og skutlaði okkur inní Garðabæ þar sem
Trausti og Hlynur komu og sóttu okkur .. sóttum svo Franza og við
fórum í e-ð tjill í garðabæ bara .. sem var svona á köflum Partý ..
húsið alveg fylltist .. en svo varð það aftur að tjilli
..

kreiseeeh ?
á sunnudeginum bara
gerði jeg e-ð lítið held jeg, eða nei jeg fór bara á ísrúnt .. og
bara tjillaði .. á mánudeginum fór jeg í skólann. fór svo á fund og
svo á stelpukvöld . ýkt kósý bara. og á þriðjudag fór jeg líka i
skólann og svo á árshátíðarnefndarfund,, og bara gerði ekkert
merkilegt held jeg .. hahah, jeg búið að vera mjög róleg vika jeg
veit .. en síðan í gær fór jeg í skólann, eftir skóla svaf jeg ..
og var bara í tölvuni og e-ð . fór svo á ísrúnt og svona .. svo
í d a g fór jeg ekki i skólann og er ekki
buin að gera neitt í dag nema horfa á sjónvarpið, sofa, borða kfc
og svona 
en þetta er komið goooott í bili .. kannski jeg skelli inn
einkunum mínum hingað inn ? eða neee, nenni því ekki nuna .. nenni
ekkki að standa upp til að ná í þær .. geri það bara seinna
..
en eitt, jeg sagði við Hörpu að jeg ætlaði ekkert að pæla í
strákum og vera bara á lausu og njóta þess .. en jeg get það
ekki jeg er alltaf að hugsa um stráka og
sambönd og e-ð blabla .. heheh, hata það ;P

endum svo á einni Arty farty sem jeg gerði af Sonju og Unnari
hahah 
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|